Heim E-Mail

Skólamyndatökur

Mikil ásókn er í skólamyndatökur hjá okkur og er mikilvægt að bóka tímanlega. Erum farin að taka við pöntunum fyrir 2010 - 2011.

Á hverju ári myndum við í a.m.k. 60 skólum og leikskólum og til þess að tryggja að þinn skóli komist að hjá okkur skaltu panta strax. 

Af gefnu tilefni, verðum við að taka fram að við erum þaulvön að vinna fyrir skóla, stóra sem smáa.  Við leggjum okkur fram um fagleg vinnubrögð, gott samstarf og örugg skil á þeim verkum sem við tökum að okkur.

Við höfum yfir 25 ára reynslu af skóla-og leikskólamyndatökum.  Leggjum áherslu á fagmannleg vinnubrögð, skjóta og góða þjónustu.  Minnum á að ljósmyndarar okkar eru með meistararéttindi.  Leitið til fagfólks.

Innheimtukerfi okkar er einfalt og öruggt.  Allir sem vilja eru myndaðir aðndlitsmyndir.  Þær eru síðan birtar á vefnum okkar.  Fólk velur og pantar.  Einfalt og ódýrt.

Allir skólar og leikskólar sem við myndum fá án endurgjalds útprentaðar tvær myndir af hverjum hópi.

Hópmynd er af öllum sem í bekknum eru. Athugið að texti með nöfnum allra sem á myndinni eru er inná myndinni svo hann glatast ekki.  Snyrtilegt og stílheint.


Innifalið:
1 mynd 20 x 25 sm. með texta.
Verð: kr. 2500.-

*Einstaklingsmyndataka er valfrjáls. 
Þeir sem þess óska eru myndaðir og stendur öllum nemendum skólans til boða. Myndir þessar eru síðan birtar á vef okkar og gefst fólki kost á að panta eftir þeim í ýmsum stærðum. 

Þessar myndatökur eru eingöngu teknar í skólunum.


Verðskráin gildir frá 1.8.08