Heim E-Mail

Um Okkur

Ljósmyndastofan Mynd er að Bæjarhrauni 26. Öll aðstaða er eins og best verður á kosið hvort sem er til fjölskyldu- eða auglýsingamyndataka. Rúmgott stúdíóið búið bestu tækjum og búnaði, auk mjög góðrar aðstöðu fyrir eftirvinnslu og frágang.

Mynd hefur starfað samfellt frá 1984 og hefur verið frá upphafi í eigu hjónanna Bjarna Jónssonar  og Grétu Björgvinsdóttur.  Auk þeirra starfar á stofunni Elín Gylfadóttir ljósmyndari. 

Ljósmyndarar okkar eru með meistararéttindi, - það tryggir þér gæði.

Við höfum í áranna rás þróað "staðlaðar" myndatökur sem tryggja að neytandinn veit nákvæmlega hvað hann fær fyrir uppsett verð. 

Við bjóðum gott úrval af römmum í öllum helstu stærðum.

Ljósmyndastofan Mynd hefur frá upphafi þjónað landsbyggðinni þ.e.a.s. mætt þangað sem óskað er bæði varðandi hefðbundnar myndatökur og skólamyndir.

Opnunartími yfir vetratímann er þriðjud.- föstudag 10 - 16 og samkvæmt samkomulagi.

Sumaropnun afgreiðslunnar er þriðjud.- föstudag 12-16.  Myndatökur samkvæmt samkomulagi í símum 565 4207 og 893 5950.

Gott aðgengi á fyrstu hæð og bílastæði við dyrnar. 

Verið velkomin.