Vörur og Þjónusta
Fermingamyndatökur
Í fermingarmyndatökum er lögð áhersla á ná sem allra bestum myndum af unglingnum. Hins vegar er hægt að bæta við þá myndatöku. T.d. mynda börnin saman, hjónin saman, eða hvern og einn sér, allt eftir væntingum hvers og eins. Aukakostnaður á bilinu 4000 kr. til 8000 kr. T.d. bætt við 2 saman eða 4-5 saman 4000 kr. / 6-8 saman 8000 kr. (Innifalið eru 2 – 4 myndir af hverri)
Í öllum myndatökum er hægt að blanda saman lit og svart hvítu fylgir því aukakostnaður að upphæð 2000 kr. og er það óháð stærð myndatökunnar.
Bjóðum uppá að setja úrval úr myndatökunni á CD diska. Þær myndir eru t.d. skemmtilegar á heimasíður fjölskyldunnar eða til að skoða í tölvunni heima. Kostar 4000 kr. Ath. ekki til útprentunar.
Leitið tilboða hjá okkur í stærri og umfangsmeiri myndatökur í síma 565 4207
Verðskráin gildir frá 1.1.2010
A myndataka
Hefur verið algeng myndataka hjá okkur sem fermingar-, barna-, eða fjölskyldu- myndataka þegar um nokkrar skiptingar er að ræða. T.d. ef á að mynda þrjú börn saman og í sitt hvoru lagi eða fermingarbarn ásamt systkinum eða barn sér og með 4-5 manna fjölskyldu.
Innifalið
- 20 myndir 13×18 sm í albúmi
- 3 myndir 20×25 sm í gjafamöppum
Verð: 43.000 kr.
CD diskur með úrvali úr myndatökunni 4.000 kr. (skjáupplausn)
B myndataka
Hefur verið algeng myndataka hjá okkur sem fermingar/unglinga eða systkinamyndataka. T.d. tvö börn saman og í sitt hvoru lagi eða eitt fermingarbarn ásamt fjölskyldu (þrír til fjórir). Sjálfsagt er að skipta um föt eða taka með sér eitthvað sem tengist áhugamálinu eða tónlist svo eitthvað sé nefnt.
Innifalið
- 16 myndir 13×18 sm í albúmi
- 3 myndir 20×25 sm í gjafamöppum
Verð: 39.000 kr.
CD diskur með úrvali úr myndatökunni 4.000 kr. (skjáupplausn)
C myndataka
Þessi myndataka hefur verið lang algengasta myndatakan hjá okkur í gegnum árin, sem fermingarmyndataka eða barnamyndataka. Hún er ætluð einum aðila sér eða einum og tveim saman.
Innifalið
- 12 myndir 13×18 sm í albúmi
- 3 myndir 20×25 sm í gjafamöppum
Verð 35.000 kr.
CD diskur með úrvali úr myndatökunni 4000 kr. (skjáupplausn)
D myndataka
Myndataka, ætluð einum. Ekki hugsuð til margra skiptinga. Myndum t.d. andlits,-mittis,- og almyndir.
Innifalið
- 6 myndir13x18 sm í albúmi,
- 2 myndir 20×25 sm í gjafamöppum
Verð 27.000 kr.
CD diskur með úrvali úr myndatökunni 4000 kr. (skjáupplausn)