Vörur og Þjónusta

Skólamyndatökur

Mikil ásókn er í skólamyndatökur hjá okkur og er mikilvægt að bóka tímanlega. Erum farn að taka við pöntunum fyrir 2010-2011.

Á hverju ári myndum við í a.m.k. 60 skólum og leikskólum og til þess að tryggja að þinn skóli komist að hjá okkur skaltu panta strax.

Af gefnu tilefni, verðum við að taka fram að við erum þaulvön að vinna fyrir skóla, stóra sem smáa. Við leggjum okkur fram um fagleg vinnubrögð, gott samstarf og örugg skil á þeim verkum sem við tökum að okkur.

Við höfum yfir 25 ára reynslu af skóla- og leikskólamyndatökum. Leggjum áherslu á fagmannleg vinnubrögð, skjóta og góða þjónustu. Minnum á að ljósmyndarar okkar eru með meistararéttindi. Leitið til fagfólks.

Innheimtukerfi okkar er einfalt og öruggt. Allir sem vilja eru myndaðir (andlitsmyndir). Þær eru síðan birtar á vefnum okkar. Fólk velur og pantar. Einfalt og ódýrt.

Allir skóla og leikskólar sem við myndum fá án endurgjalds útprentaðar tvær myndir af hverjum hóp.

Hópmynd er af öllum sem í bekknum eru. Athugið að texti með nöfnum allra sem á myndinni eru er inni á myndinni svo hann glatist ekki. Snyrtilegt og stílhreint.

Innifalið

Verð: 2.500 kr.

Einstaklingsmyndataka er valfrjáls

Þeir sem óska eru myndaðir og stendur öllum nemendum skólans til boða. Myndir þessar eru síðan birtar á vef okkar og gefst fólki kostur á að panta eftir þeim í ýmsum stærðum.

Þessar myndatökur eru eingöngu teknar í skólunum.

Skólar sem við höfum myndað

Hér að neðan er hluti þeirra skóla sem við höfum unnið fyrir á síðustu misserum. Ykkur er velkomið að hafa samband við neðangreinda skóla og kanna vinnubrögð okkar. Erum farin að bóka fyrir næsta skólaár, 2010-2011.