Um Okkur
Ljósmyndastofan Mynd er að Bæjarhrauni 26. Öll aðstaða er eins og best verður á kosið hvort sem er til fjölskyldu- eða auglýsingamyndataka. Rúmgott stúdíóið búið bestu tækjum og búnaði, auk mjög góðrar aðstöðu fyrir eftirvinnslu og frágang.
Mynd hefur starfað samfellt frá 1984 og hefur verið frá upphafi í eigu hjónanna Bjarna Jónssonar og Grétu Björgvinsdóttur. Auk þeirra starfar á stofunni Elín Gylfadóttir ljósmyndari.
Ljósmyndarar okkar eru með meistararéttindi, – það tryggir þér gæði.
Við höfum í áranna rás þróað “staðlaðar” myndatökur sem tryggja að neytandinn veit nákvæmlega hvað hann fær fyrir uppsett verð.
Við bjóðum gott úrval af römmum í öllum helstu stærðum.
Ljósmyndastofan Mynd hefur frá upphafi þjónað landsbyggðinni þ.e.a.s. mætt þangað sem óskað er bæði varðandi hefðbundnar myndatökur og skólamyndir.
Opnunartími yfir vetratímann er þriðjud.- föstudag 10 – 16 og samkvæmt samkomulagi.
Sumaropnun afgreiðslunnar er þriðjud.- föstudag 12-16. Myndatökur samkvæmt samkomulagi í símum 565 4207 og 893 5950.
Gott aðgengi á fyrstu hæð og bílastæði við dyrnar.
Verið velkomin.